







|
FERÐALAG TIL FORTÍÐAR
Í fyrsta sinn gefur að líta á einum stað sögufrægar persónur og stórviðburði Íslandssögunnar, frá landnámi til siðaskipta sem standa ljóslifandi fyrir augum okkar með einstökum hætti.
Sögusafnið er safn sem færir þig nær andartaki sögulegra atburða. Safnið endurspeglar þá atburði sem best lýsa sögu okkar, skópu örlög alþýðunnar og sýna forvitnilegar hliðar á landi og þjóð. Í þessu fjölbreytilega og lifandi safni er jafnt íslenskum sem erlendum gestum veitt tækifæri til að kynnast Íslandsögunni á skemmtilegan og fræðandi hátt. |
 |
 |
ÓLGUSJÓR FORTÍÐAR
Daglegt líf á Íslandi fyrr á öldum hefur eflaust reynst erfitt sakir kulda og stundum hrikalegra aðstæðna. Landið er ungt og ómótað og náttúruhamfarir á borð við eldsumbrot og jarðskjálfta, því enn tíðar. Íslenska þjóðin varð auk þess fyrir gífurlegum áföllum líkt og í svartadauða þar sem ríflega þriðjungur íbúa landsins féll í valinn á örfáum árum. Þrátt fyrir þetta þraukaði fólk hér í meira en þúsund ár og lét eftir sig stórmerka menningu og bókmenntir á heimsmælikvarða. |
| Á sögusafninu gefur meðal annars að líta á Snorra Sturluson við skrif sín, galdrabrennu, aftöku Jóns Arasonar sem var síðasti kaþólski biskups Íslands, Örlygsstaðabardaga þar sem liðsmenn Sturlunga voru stráfleddir í einni af mannskæðustu orrustum þjóðveldisaldar og við lítum inn í lítið kot þar sem svartidauði hefur markað spor sín á heimilisfólkið. |
 |
|