PERSÓNUR
OG LEIKMYNDIR
Þar sem engar myndir er að finna frá sögulegum
tíma er eingöngu stuðst við lýsingar í
fornum ritum. Þegar svipmikil manneskja sem líkist rituðum
lýsingum er fundin er tekin afsteypa af viðkomandi og hún
steypt í silikon.
Að því loknu er andlitið málað og
hárum stungið í afsteypuna, hár fyrir hár.
Þannig hafa verið skapaðar nánast lifandi eftirmyndir
af fólki og þær settar í hlutverk sögufrægra
persóna.
Fatnaður, vopn og hversdagslegir hlutir eru þar að auki
búnir til með aðferðum forfeðra okkar með
það að sjónarmiði að allt í safninu
verði sem upprunalegast. Þannig eru vopnin slegin til, ull
og hör lituð með náttúrulegum efnum og
tréhlutir látnir veðrast með eðlilegum hætti.